Því miður verðum við að fresta Ístölt Austurlands vegna veðurs. Ný dagsetning væntanleg :-)
kv stjórn Freyfaxa
kv stjórn Freyfaxa
Því miður verðum við að fresta Ístölt Austurlands vegna veðurs. Ný dagsetning væntanleg :-)
kv stjórn Freyfaxa
0 Comments
![]()
Það eru 10 pláss á þetta námskeið og hvetjum við Freyfaxafélagar til að skrá sig. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Stjórn Freyfaxa. Æskulýðsstarf Freyfaxa veturinn 2021
- aðeins öðruvisi fyrirkomulag út af Covid 19 Við ætlum að hefja reiðkennsluna aftur eins og venjulega í byrjun janúar – vonandi verður það hægt ! Að sjálfssögðu gerum við allt til að minnka smitáhættu með því að vera með mjög litla hópa (helst úr sama sóttvarnahólfi / fjölskyldu ), halda fjarlægð, vera með hanska og etv með grimu. Bóklegir tímar verða ekki innanhúss heldur innifaldir í verklegu kennslunni, allavega fram í mars. það er ekki víst að hægt verði að halda okkar sameiginlegu vorhelgi í mai. Ef ekki þá gerum við eitthvað skemmtilegt í hverjum hópi þá helgi og börnin fá í staðinn aukalega einn langan útreiðartúr á Gislastöðum eða Geirastöðum seinna í vor eða sumar. Við ætlum að skipta kennslunni í vetur þannig upp: Polla- og byrjandarkennslan fer fram á Gislastöðum. Hinir hóparnir ( lengra komnir og knapamerki ) verða í reiðhöllinni á Iðavöllum. Það verða 9 skipti , 90 -120 mínutur í senn fyrir hvern hóp ( 2- 4 þátttakendur ) Dagsetningar ( sumir hópar líka á laugardögum ) 10.1. – 24.1. – 7.2. – 21.2. – 7.3. - 21.3. – 18.4. – 2.5. og lokakennsla (eða vorhelgi ) 8.- 9.5. Vorhelgi er heil helgi með keppni / sýningum fyrir alla, gistingu, ratreið og hestaleikjum. Kennarar verða eins og áður: Angelika Liebermeister, Tamningamaður FT og IPZV- reiðkennari C Ellen Thamdrup, Tamningamaður og Þjálfari FT Eftirfarandi hópar verða í boði, skipt eftir reynslu og aldri: Polla- og byrjendaflokkar ( lágmarksaldur 4 ára ) – á Gislastöðum það verður boðið upp á sérhópa - (2 til 3 í einu, 1½ til 2 tíma í senn) með traustum hestum á staðnum. Aðaláhersla er lögð á að kynnast og umgangast hesta ( kemba, teyma og leggja á með aðstoð, læra grunnatriði ábendingar / taumhalds ), jafnvægisæfingar í hringtaum og reiðkennslu á hestbaki ívafið hestaleikjum. Ef veðrið leyfir er farið í teymda útreiðartúra. Börnin verða í fylgd foreldris, sem getur hjálpað í teymingu. Kennari: Ellen Thamdrup Verð : 44 000 ,- kr. Börn / unglingar með smá reynslu ( krakkar 6 - 18 ára )- á Iðavöllum Kennt verður í litlum hópum með traustum hestum frá okkur eða með eigin hest. Í þessum hópum ætlum við að kynnast hestinum betur (læra um eðli, hegðun og þarfir hans), læra áfram að umgangast hann rétt ( að kemba/ taka upp fætur, leggja á / beisla, teyma o.s.frv.), gera sætisæfingar í hringtaum eða á teymdum hestum, læra að stjórna hestinum sjálf í gegnum skemmtilegar þrautabrautir, að þekkja gangtegundir og reiðleiðir, fara í hestaleiki og af og til í útreiðartúra þegar veður leyfir. Börnin verða í fylgd foreldris sem geta hjálpað til Kennari: Angelika Liebermeister Verð: 36.000,- kr. (með eigin hest) 46.000,-kr. (með leiguhest) Vanir krakkar –á Iðavöllum Krakkar í þessum hópum koma með eigin hest eða fá lánað hjá okkur. Margir möguleikar- endilega verið í bandi og látið vita hvað ykkur langar að gera J Það er hægt að vinna bæði í einkakennslu (sætisæfingar, vinna í ásetu og ábendingum) og í hópkennslu: Almenn reiðkennsla ( stjórn og ábendingar, gangtegundir, reiðleiðir) , ríða berbakt, fara í útreiðartúra, æfa hindrunarstökk og fara í hestaleiki. Keppnisþjálfun fyrir þá sem vilja. Kennari og dagsetningar: eftir samkomulag Knapamerki 1-3 – á Iðavöllum Við verðum núna í vetur með stóran hóp sem ætlar að taka knapamerkjapróf 1 og 2. Þátttaka er fyrir börn árgang 2009 og eldri sem eru komin með reynslu. Knapamerki er skemmtilegt og fróðlegt námskerfi frá Háskólanum á Hólum sem endar með opinberu prófi í mismunandi stigum. þeir sem hafa lokið knapamerki 1 og 2 geta tekið knapamerki 3 (lágmarksfjöldi 3 knapar). Nánari upplýsingar um knapamerki eru að finna á http://knapamerki.is/ . Bóklegir tímar fara fram í gegnum zoom eða teams. Verklegir tímar verða stundum í formi sýnikennslu fyrir alla en venjulega í litlum hópum , 2 – 3 nemendur í 90 - 120 mín í senn Kennari: Angelika Liebermeister Verð : 40.000,- kr. (með eigin hest) 50.000,-kr. (með leiguhest) plús prófkostnaður Skráning og upplýsingar Ellen: gislastadir@emax.is gsm 8673238 Angie: angelika_liebermeister@web.de gsm 8453006 Undanþágu um opnun reiðhalla var samþykkt af sóttvarnayfirvöldum og er hér með komin leyfi að nota reiðhöllina á Iðavöllum á ný með takmörkunum (semsagt 10 manna fjöldatakmörk). Gólfefnið hefur fengið gott viðhald ekki fyrir löngu síðan og vonandi verður gaman að þjálfa þarna inni nú í vetur :-)
Góð kveðja, stjórn Freyfaxa Við í Stjórn Freyfaxa viljum minna á að reiðhöllin á Iðavöllum er ennþá lokuð samkvæmt sóttvarnareglum. LH er búið að senda inn umsókn um undanþágu vegna notkunnar á reiðhöllum um allt land og bíðum við eftir svör frá sóttvarnayfirvöldum. Vonandi fáum við að opna höllina sem fyrst og munum við tilkynna um það um leið og leyfi hefur verið veitt.
Kæru Freyfaxafélagar og aðrir hestamenn.
Samkvæmt sóttvarnaryfirvöldum eiga allar reiðhallir að vera lokaðar til 17. nóvember eins og önnur íþróttamannvirki án undantekninga Þannig að reiðhöllin okkar á Iðavöllum er að sjálfsögðu lokuð til 17. nóvember Stöndum saman í þessu öllu Stjórn Freyfaxa Hestamenn takið eftir!!!
Stjórnin hefur ákveðið að halda þetta mót af fullari krafti. Við förum að sjálfsögðu eftir reglum frá sóttvarnalækni og pössum okkur að virða 2m fjarlægð milli okkar. Dómarar verða einir í bílnum og rita sjálf í þetta skiptið. Knapafundur verður haldinn utandýra. Sjóppan verður með "sjálfsafgreiðslu" með innpakaðar samlokur, drykkir og súkkulaði. Til að forðast snertingu verður ekki posa heldur mæta allir sem vilja kaupa sér eitthvað með pening :-) Góðar hestafólk, við reynum að hafa gaman af þessu og eiga skemmtilegan dag í hestamennsku!!! Dagsskrá verður birt eftir að skráningarfrestur rennur út um miðnætti á Miðvikudagskvöld 5. ágúst. Skráningar fara fram í gegnum Sportfeng. Hlökkum til að sjá sem flesta :-) stjórn Freyfaxa Við erum stolt að auglýsa opið Íþróttamót Austurlands sem fer fram 8. ágúst 2020. Þetta verður keyrt á einum degi, löglegt með 3 dómaranum.
Nánari upplýsingar síðar. Takið deginum frá!!! stjórn Freyfaxa |
|