Þeir einstaklingar sem fengu bréf frá Matvælastofnun um skil á haustskýrslum áttu að ganga frá skráningum fyrir 20. nóvember. Kerfið virðist þó enn vera opið og því hægt að ganga frá því. Þeir sem eiga hross og hafa ekki fengið bréf þurfa að hafa samband til að skrá þá inn í kerfið. Allir búfjáreigendur (hrossaeigendur meðtaldir) eru lögum samkvæmt skildaðir til að uppfæra sínar skráningar árlega. Ef þeir gera það ekki má gera ráð fyrir að talningamaður mæti með tilheyrandi kostnaði. Það er því klárlega kostur að hafa frumkvæði að þessum skráningum og fyrir þennan árlega skilafrest
Sé frekari upplýsinga þörf er hægt að hafa samband við Ásdísi Helgu Bjarnadóttur hjá MASt í síma 530 4825