Eftir fjölda áskorana frá félagsmönnum hefur verið tekin ákvörðun um að fresta félagsmóti og úrtöku fyrir Fjórðungsmót til 20. júní. Með þessu vonum við að sem flestir taki þátt, hrossin verði tilbúnari, völlurinn betri og veðrið skaplegra.
Þetta þýðir því að engir ráslistar verða birtir núna en við mætum öll aftur sterk til leiks eftir tvær vikur í brakandi blíðu og sumri ;)
Vonandi hefur þetta sem minnst neikvæð áhrif á þá knapa sem voru skráðir til leiks.
Það væri ljúft ef að þeir sem hefðu farandbikara í fórum sér muni eftir að taka þá með sér þann 20.júní, eða koma þeim til formanns.