Það verður keppt í fjórgangs- og fimmgangsmóti Fellabakarís í reiðhöllinni á Iðavöllum föstudaginn 7. apríl Mótið hefst kl. 19:00 og verða veitingar frá Fellabakaraíi á boðstólnum. Við ætlum að pota tölti 17 ára og yngri inn í kvöldið þar sem helmingur skráninga á töltmótið voru í þeim flokk. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Greinarnar sem keppt verður í eru eftirfarandi í þessari röð:
Tölt 17 ára og yngri (T7, einn inn á í einu í forkeppni, einn hringur hægt tölt, einn hringur fegurðartölt)
Fjórgangur áhugamanna
Fjórgangur, opinn flokkur
Fimmgangur
Fjórgangur 17 ára og yngri
Úrslit eru riðin strax að lokinni forkeppni í öllum flokkum.
Skráningar fara fram hér á síðunni og mótið er opið öllum, óháð því í hvaða hestamannafélag knapi er skráður. Skráningargjald er 2.500 kr. og greiðist á staðnum.
Skráningarfrestur rennur út á miðnætti fimmtudagsins 6. apríl.