Þá er komið að fyrsta mótinu í sameiginlegri mótaröð Freyfaxa og Blæs og við byrjum á fjórgangi í reiðhöllinni á Iðavöllum. Keppnin fer fram föstudaginn 23. mars og hefst stundvíslega kl. 20.00. Knapafundur verður haldinn kl. 19.30. Glæsilegir vinningar verða í boði Landsstólpa.
Opnað hefur verið fyrir skráningar undir skráningarflipanum hér að ofan og er mótið öllum opið. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti fimmtudaginn 22. mars.
Flokkarnir sem keppt verður í eru þrír:
Þrígangur - 13 ára og yngri, sýnt tölt, brokk og fet, stjórnað af þul.
Fjórgangur 14-17 ára
Fjórgangur áhugamanna
Fjórgangur - Opinn flokkur.
Fjórgangskeppni fer þannig fram að knapar sýna hægt tölt, hægt til milliferðarbrokk, hægt til milliferðar stökk, meðalfet og yfirferðartölt. Knapi velur upp á hvora höndina hann ríður og ríður einn hring á hverri gangtegund nema feti þar sem riðinn er hálfur hringur.
Skráningargjald eru 2.000 kr. á hverja skráningu.
Fellabakarí býður upp á léttar veitingar meðan á herlegheitunum stendur og því hvetjum við alla til að kíkja í reiðhöllina á Iðavöllum og fylgjast með skemmilegri keppni. Aðgangseyrir er 1.000 kr.