Nærri 20% félagsmanna í hestamannafélaginu Freyfaxa , eða nærri því 40 manns, voru mættir á opinn félagsfund Freyfaxa sem haldinn var í gær, fimmtudaginn 7.ágúst í Stekkhólma, þar sem rædd var staða Freyfaxa og byrjað á umræðu um hvort halda eigi fjórðungsmót á næsta ári. Telja má víst að þetta sé mæting með besta móti hvort sem um er að ræða hestamannafélag eða önnur félög í nútímasamfélagi þar sem fólk virðist ekki lengur hafa tíma til að sinna félagsstarfi. Félagsmenn sýndu með þessu að þeim er annt um félagið, og heyrðist það og sást að menn og konur eru tilbúin til að vinna saman og gera gott félag ennþá betra. Fundarmenn voru almennt sammála um að hestamennskan hefur farið aðeins niður á við síðastliðinn áratug, en vilji allra er til að rífa stemninguna upp og gera gott úr því sem við höfum. Loksins höfum við fullmannaða stjórn sem skipuð er eftirfarandi: Bjarki Þorvaldur Sigurbjartsson formaður Nikólína Ósk Rúnarsdóttir varaformaður Dagbjört Briem Gísladóttir meðstjórnandi Þóra Sólveig Jónsdóttir gjaldkeri Valdís Hermannsdóttir ritari Varamenn eru Marietta Maissen, Guðrún Agnarsdóttir og Herdís Magna Gunnarssdóttir | Vill stjórnin þakka öllum sem mættu á fund fyrir góðan og á köflum ákafan fund. Við erum öll sammála um að þetta var frábært og við hlökkum til að sjá svona marga á næsta fundi. Áætlað er að halda aftur fund í september eða október og ákveða þar hvort og/eða hvernig fjórðungsmót verður. Við hittumst svo hress og kát á Gæðingamóti eftir rétt rúma viku |