Hestamannafélagið Freyfaxi
  • Fréttir
  • Hestaheimurinn
    • Okkar fólk
    • Spjallborð
  • Reiðhöllin
    • Gjaldskrá
    • Notkunarreglur
    • Áskriftarkort Freyfaxafélaga
  • Krakkafréttir
  • Skráningar
  • Stjórn/nefndir
  • Viðburðir
  • Fjórðungsmót 2015
    • Dagskrá
    • Mótssvæðið Stekkhólmi
    • Ráslistar
    • Miðaverð
    • Almennar upplýsingar
    • Kynbótahross
    • Sundurliðaðar einkunnir >
      • B-flokkur
      • Barnaflokkur
      • Unglingaflokkur
      • Ungmennaflokkur
      • A-flokkur
      • Tölt T1 Opinn flokkur
      • Tölt T3 Börn
      • Tölt T3 Unglingar
      • Tölt T3 Ungmenni
      • Tölt T3 Áhugamenn
    • Úrslit >
      • A-flokkur
      • B-flokkur
      • Ungmenni
      • Unglingar
      • Börn
      • Tölt, Opinn flokkur
      • Tölt, áhugamenn
      • Tölt ungmenni
      • Tölt Unglingar
      • Tölt Börn
      • 100m Skeið
    • Afskráningar

Opið félagsmót 8.-9. júlí

6/28/2017

 
Félagsmót Freyfaxa verður haldið helgina 8.-9. júlí nk. í Stekkhólma. Keppt verður í eftirfarandi greinum:

A-flokkur
B-flokkur
B-flokkur áhugamenn (riðin sérstök forkeppni)
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt T1 opinn flokkur
Tölt T3 áhugamenn
Tölt T3 17 ára og yngri
Hindrunarstökk með útsláttarfyrirkomulagi (ekkert skráningargjald, skráningar á staðnum. Hægt að prufa brautina fyrir keppni)
Mótið er opið mót og því skiptir engu máli í hvaða hestamannafélag keppendur eru skráðir.

Skráningar fara fram á skraning.sportfengur.com og er skráningargjald 3.000 kr. á hverja skráningu. Skráningafrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 5. júlí. Vanti einhverjum hjálp við að skrá á mótið er hægt að hafa samband við Valdísi í síma 848-0632. Við biðjum þá sem höfðu skráð áður að gera það aftur til að staðfesta þátttöku sína á mótinu.

Forkeppni hefst kl. 11.00 á laugardegi en knapafundur hefst klukktúma fyrr eða klukkan 10.00. Úrslit hefjast kl. 10.00 á sunnudeginum. 

Hægt er að hólfa niður beitarhólf fyrir hross á svæðinu, en hesteigendur þurfa að koma með strengi, staura, rafstöð og dalla til að brynna í sjálfir. 
​
Þegar keppni lýkur á laugardeginum verður farið í reiðtúr um svæðið og að reiðtúr loknum bjóða Hofteigur og Freyfaxi upp á grillkjöt og meðlæti. Við biðjum alla þá sem ætla að mæta á grillið að skrá sig á netfangið freyfaxihestar@gmail.com fyrir hádegi miðvikudaginn 5. júlí. 

Að lokum biðlum við til félagsmanna að hjálpa okkur við framkvæmdina en þeir sem geta komið að störfum á mótinu, með einum eða öðrum hætti, eru beðnir að hafa samband við Bjarka í 843-7619. 

Comments are closed.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.