Hestamannafélagið Freyfaxi
  • Fréttir
  • Hestaheimurinn
    • Okkar fólk
    • Spjallborð
  • Reiðhöllin
    • Gjaldskrá
    • Notkunarreglur
    • Áskriftarkort Freyfaxafélaga
  • Krakkafréttir
  • Skráningar
  • Stjórn/nefndir
  • Viðburðir
  • Fjórðungsmót 2015
    • Dagskrá
    • Mótssvæðið Stekkhólmi
    • Ráslistar
    • Miðaverð
    • Almennar upplýsingar
    • Kynbótahross
    • Sundurliðaðar einkunnir >
      • B-flokkur
      • Barnaflokkur
      • Unglingaflokkur
      • Ungmennaflokkur
      • A-flokkur
      • Tölt T1 Opinn flokkur
      • Tölt T3 Börn
      • Tölt T3 Unglingar
      • Tölt T3 Ungmenni
      • Tölt T3 Áhugamenn
    • Úrslit >
      • A-flokkur
      • B-flokkur
      • Ungmenni
      • Unglingar
      • Börn
      • Tölt, Opinn flokkur
      • Tölt, áhugamenn
      • Tölt ungmenni
      • Tölt Unglingar
      • Tölt Börn
      • 100m Skeið
    • Afskráningar

Reiðkennsla með Reyni Atla

3/22/2015

0 Comments

 
Reynir Atli Jónsson reiðkennari ætlar að vera með reiðkennslu í reiðhöllinni á Iðavöllum í apríl og maí. Nemendur geta ráðið á hvað þeir vilja leggja áherslu á í kennslunni hvort sem þeir vilja bæta reiðmennsku sína almennt, fá ráðleggingar með reið- eða keppnishross og svo er þetta kjörið tækifæri fyrir þá sem hyggja á keppni í sumar. 

Boðið er upp á kennslu laugardaginn 18. apríl og síðan er boðið uppá kennslu helgina 30.-31. maí. 

Mögulegt er að einhver hluti kennslunnar í maí fari fram á vellinum á Stekkhólma og Reynir getur þá hjálpað knöpum að fínpússa prógrammið fyrir félagsmótið og úrtökuna sem fram fer 7. júní. 

Enn á eftir að ákveða verð og lengd á hverjum tíma og hvort það verða 1 eða 2 í hverjum tíma en báðir þættir ráðast á eftirspurn eftir kennslu og verður verði haldið eins lágu og mögulegt er. 

Sú ákvörðun hefur verið tekin að knapar 18 ára og yngri hafi forgang í kennslu og verður verðið eitthvað lægra fyrir þann hóp. 


Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Bjarka sem fyrst svo hægt sé að skipuleggja kennsluna sem allra fyrst í síma 843-7619 eða með tölvupósti í bjarki.thorvaldur@gmail.com 
0 Comments



Leave a Reply.

Powered by Create your own unique website with customizable templates.