Í vetur verður haldin námskeiðaröð í reiðhöllinni á Iðavöllum. Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og í fyrra en kennt verður fjórar helgar og í boði er að kaupa sér staka helgi eða aðgang að öllum námskeiðunum. Kennarar verða Reynir Atli Jónsson, reiðkennari C, og Þórarinn Ragnarsson tamingamaður sem á meðal annars Íslands- og Landsmótstitla í verðlaunasafninu. Kennt verður í reiðhöllinni á Iðavöllum og hver tími er 45 mínútur. Takmarkað sætaframboð og meðlimir í Freyfaxa og þeir sem skrá sig á námskeiðaröðina ganga fyrir. Reynir Atli kennir helgarnar 3.-4. febrúar, 24.-25. mars og 28.-29. apríl. Þórarinn kennir 3.-4. mars. Verðskrá, meðlimir í Freyfaxa: Stök helgi hjá Reyni Atla: 17.000 Stök helgi hjá Þórarni: 22.000 Námskeiðsröð: 65.000 Verðskrá, aðrir en félagsmenn: Stök helgi hjá Reyni Atla: 20.000 Stök helgi hjá Þórarni: 25.000 Námskeiðsröð (allar helgar): 75.000 kr. Nánari upplýsingar og skráningar eru hjá Timma í síma: 861-4030 eða hallgrimurf@landsnet.is og eru þeir sem vilja skrá sig á námskeiðsröðina beðnir að gera það í síðasta lagi 25. janúar. |