Það hefur gengið nokkuð brösuglega hjá okkur að finna dagsetningu fyrir Reyðafjarðarreiðina. Núna er staðan sú að vegna óviðráðanlegra ástæðna getum við ekki haft hana á sumardaginn fyrsta (sem miðað við veðurspá fyrir fimmtudaginn er nú kanski bara gott). Reyðafjarðarreiðin verður farin sunnudaginn 26. apríl kl. 14.00 (lagt af stað frá Sléttu svo endilega mætið tímanlega). Þessi útreið verður því miður að stangast á við krakkanámskeið hjá okkur vegna stífrar dagskrár í hestamennskunni í apríl.
Við vonumst til þess að sjá sem flesta og verðum vonandi eins heppin með veður eins og við erum búin að vera núna um helgina.
Útreiðanefnd Freyfaxa
Við vonumst til þess að sjá sem flesta og verðum vonandi eins heppin með veður eins og við erum búin að vera núna um helgina.
Útreiðanefnd Freyfaxa