Búið er að opna fyrir skráningar á Ístölt Austurlands sem fram fer á Móavatni við Tjarnaland 20. febrúar nk. Keppt er í 3 flokkum í tölti; opnum flokki, áhugamannaflokki og flokki 16 ára og yngri, auk þess sem keppt er í A-flokk og B-flokk.
Skráningar fara fram undir skráningaflipanum á www.freyfaxi.org og eru skráningargjöld 3.000 kr. fyrir fyrstu skráningu knapa en 2.000 kr. fyrir hverja skráningu eftir það. Skráningafrestur rennur út kl. 20.00 fimmtudaginn 18. febrúar.
Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 1.000 kr.