Mikilvægar upplýsingar fyrir keppendur og áhorfendur á ístölti Austurlands sem haldið verður að þessu sinni á grasbrautinni á Stekkhólma.
Mótið hefst stundvíslega kl 10:00 í fyrramálið á forkeppni í B flokki. Strax að lokinni forkeppni í hverri grein verða riðin úrslit í viðkomandi flokk. Í úrslit í A og B flokki mæta 8 efstu hross að lokinni forkeppni. Að loknum gæðingaflokkum verður 30 mínútna hlé og svo hefst keppni á tölt flokki undir 17 ára með sama sniði og gæðingaflokkarnir voru riðnir, þá áhugamenn og að lokum opinn flokkur tölt.
Vegna sóttvarnarreglna verður engin kaffi eða veitingasala á staðnum og hvetjum við þessvegna fólk til þess að taka með sér nesti. Áhorfendur eru einungis leyfðir í bílum á svæðinu og klósettaðstaða er því miður ekki í boði.
Knapar eru vinsamlegast beðnir um að leggja kerrum uppi við félagshús og ekki koma með þær niður að keppnisbraut.
Þar sem að ekki má halda knapafund þá eru hér upplýsingar um fyrirkomulag flokkanna en þulur mun einnig kynna inn öll atriði ef knapar eru í vafa. Mikilvægt er að passa bil vel á milli keppenda en um leið passa að ekki þurfi að bíða eftir fólki í braut.
B flokkur forkeppni: 4 ferðir í eftirfarandi röð:
1. Hægt tölt
2. Brokk
3. Yfirferð
4. Knapi velur gangtegund sem sýnd hefur verið áður. Tilvalið til þess að bæta einkunn gangtegundar.
A flokkur forkeppni
Knapi hefur 4 ferðir til þess að sýna tölt, brokk og skeið
Tölt T7, 17 ára og yngri: 4 ferðir í eftirfarandi röð.
1. Hægt tölt
2. Hægt tölt
3. Frjáls ferð á tölti
4. Frjáls ferð á tölti
(hér er hvert atriði riðið í báðar áttir)
Tölt T3 áhugamenn: 4 ferðir í eftirfarandi röð.
1. Hægt tölt
2. Hraðabreytingar
3. Yfirferðartölt

Tölt T3 opinn flokkur: 4 ferðir í eftirfarandi röð.