Æskulýðsstarf Freyfaxa veturinn 2019
Kennslan byrjar í byrjun janúar og verður oftast á sunnudögum, þannig verða 2 skipti á mánuði þar til í byrjun maí, 2 klukkutíma í senn (bóklegt og verklegt).
Dagsetningar:
13.1. – 27.1. – 10.2. – 24.2. – 10. eða 17.3. - 24.3. – 7.4. – 28.4. og vorhelgi 4.- 5.5.
Vorhelgi er heil helgi með keppni / sýningum fyrir alla, gistingu, ratreið og hestaleikjum.
Kennt verður í reiðhöllinni á Iðavöllum og stundum á félagssvæði Stekkhólma.
Kennd verður almenn hesta- og reiðmennska, bæði verk-og bókleg, stuðst við efni sem gert er af Ellen Thamdrup og knapamerkjabókunum ( http://knapi.holar.is/ ).
Kennarar verða eins og áður:
Angelika Liebermeister, Tamningamaður FT og IPZV- reiðkennari C
Ellen Thamdrup, Tamningamaður og Þjálfari FT
Melanie Hallbach, sjúkraþjálfari með áratuga langa reynslu í hestamennskunni
Við ætlum að vera með nokkra mismunandi hópa eftir reynslu og aldri:
Polla- og byrjendaflokkur (krakkar 4 – 7ára)
það verður boðið upp á sérhópa - (2 til 3 í einu, 1½ til 2 tíma í senn og aðrar dagsetningar – 12.1 – 26.1 – 9.2 – 23.2 – 9.3 - 23.3 – 6.4 – 27.4 (æfing fyrir krakkahelgi í stóru reiðhöllinni + smá reiðtúr) og vorhelgi 4.- 5.5.
Þetta námskeið fer fram á Gíslastöðum. Aðaláhersla er lögð á að kynnast og umgangast hesta (kemba, leggja á með aðstoð), jafnvægisæfingu í hringtaum og reiðkennslu á hestbaki ívafið hestaleikjum.
Byrjendur og börn / unglingar með smá reynslu ( krakkar 6 - 18 ára )
Kennt verður í litlum hópum með traustum hestum frá okkur eða með eigin hest.
Í byrjendahópunum ætlum við að kynnast hestinum (læra um eðli, hegðun og þarfir hans), læra að umgangast hann ( læra að kemba/ taka upp fætur, leggja á / beisla, teyma o.s.frv.), gera sætisæfingar í hringtaum, læra að stjórna hestinum og að þekkja gangtegundir, fara í hestaleiki og af og til í (teymda ?) útreiðartúra þegar veður leyfir. Krakkar sem komnir eru með einhverja reynslu mega gera meira og meira sjálfir.
Vanir krakkar
Krakkar í þessum hópum koma með eigin hest eða fá lánað hjá okkur.
Unnið er bæði í einkakennslu (sætisæfingar, vinna í ásetu og ábendingum, stígandi áseta osfrv. ) og í hópkennslu: Almenn reiðkennsla ( stjórn og ábendingar, gangtegundir, reiðleiðir) og ríða berbakt, æfa hindrunarstökk og hinir vinsælu hestaleikar.
Knapamerki
Fyrir krakkar 12 ára og eldri er möguleiki á að taka knapamerki 1 og 2.
Fyrir þá sem hafa lokið knapamerki 1 og 2 verður hægt að taka knapamerki 3 (lágmarksfjöldi 4 knapar). Verð fer eftir þátttakendafjölda.
http://knapamerki.is/
Verð fyrir veturinn:
8 skipti (verklegir + bóklegir tíma og efni) + vorhelgi:
34.000,- kr. (með eigin hest)
46.000,-kr. (með leiguhest)
42.000,-kr (Pollaflokkur á Gíslastöðum)
Keppnisþjálfun verður með öðrum kennurum og verður auglýst á heimasiðu félagsins og Facebook siðar.
Skráning og upplýsingar
Ellen: gislastadir@emax.is gsm 8673238
Angie: angelika_liebermeister@web.de gsm 8453006